23.05.2012 21:29

cghm

                                                  

Við mótttöku hjá sænska sendiráðinu lenti ungur maður á snakki við eldri herramann við púnsskálina. Talið barst að HM í íshokkí sem Kanada hafði einmitt unnið nýlega. Ungi maðurinn segir þá sannfærandi: "Það er jú þekkt staðreynd að allir Kandamenn eru annað hvort í íshokkí eða vændi !!""Drengur minn" segir þá eldri maðurinn " ég vil vekja athygli þína á að konan mín er frá Kanada !!""Nei er það" segir sá ungi "með hvaða liði spilar hún ?"
                                       

Vinkonur fóru á bar og drukku sig fullar eins og kvenna er siður þegar þær eru ekki með karlana með sér. Þegar þær voru að labba heim þurftu þær báðar nauðsynlega að pissa. Þær voru hjá kirkjugarðinum og ákvaðu að pissa bakvið einhvern legstein þar. Sú sem fyrst pissaði þurrkaði sér á nærbuxunum sínum og henti þeim eitthvað út í loftið að því loknu. Vinkona hennar var aftur á móti í rokdýrum nærum sem hún vildi ekki tapa, en var svo heppin að hún gat teigt sig í borða af kransi á næsta leiði og þurrkað sér á honum. Vinkonurnar gátu nú haldið ferð sinni áfram og komust heim heilar á húfi. Daginn eftir hringdi eiginmaður annarrar þeirra í hinn og sagði; "Þessum kvennakvöldum þarf að fara að ljúka. Konan mín kom nærbuxnalaus heim í nótt." "Það er nú ekkert," sagði hinn, "Mín kom heim með samúðarkort á milli rasskinnanna og á því stóð, Frá okkur öllum á slökkvistöðinni, við munum aldrei gleyma þér.

24.03.2012 20:18

Ótitlað

                                          

Vel klæddur lögfræðingur fór inn á bar og pantaði martini og sá að við hliðina á honum sat róni sem muldraði og glápti á eitthvað í hendinni á sér. Lögfræðingurinn hallaði sér lengra að honum og heyrði að róninn sagði, þetta lítur út eins og plast, síðan rúllaði hann því á milli fingranna á sér og sagði síðan, en þetta er eins og gúmmí viðkomu. Lögfræðingurinn spurði forvitinn, hvað ertu með þarna manni. Róninn sagði, Ég hef ekki hugmynd en það lítur út eins og plast en er eins og gúmmí viðkomu. Má ég sjá, sagði lögfræðingurinn og róninn lét hann fá þetta. Lögfræðingurinn rúllaði því milli fingranna á sér og skoðaði þetta gaumgæfilega. Já, þetta lítur út eins og plast en er eins og gúmmí viðkomu en ég veit ekki hvað þetta er,     hvar fékkstu þetta eiginlega?

Bara úr nefinu á mér, sagði róninn.

                                          

 

Ég og bóndinn vorum stödd á nautgripasýningu og voru þar nokkur naut í röð. -Hjá fyrsta nautinu stendur á skilti :  Þessi hefur gert það 130 sinnum yfir árið, ég gaf bóndanum olnbogaskot.... -næsta naut er með skilti sem á stendur 210 sinnum yfir árið, og aftur fékk bóndinn olnbogaskot ... -á þriðja stendur svo 365 sinnum yfir árið, og þá hnippti ég nú almennilega í karlinn.....

 Já.. já.. segir sá gamli.... það er nú ekki eins og þau séu alltaf með sömu helvítis beljunni


10.12.2011 09:12

sdfj

                                              

Þrír karlar sátu saman yfir glasi. Þeir fóru að ræða um eiginkonur sínar.

Fyrst segir sá dökkhærði - konan mín er svo undarleg, það var nautakjötsútsala í Hagkaup um daginn og hún keypti 50 kg af kjöti og við sem eigum ekki einu sinni frystikistu. Nú liggur allt þetta kjöt í þvottahúsinu og við komumst örugglega ekki yfir að éta það áður en það skemmist.

Þá segir sá rauðhærði - konan mín er svo klikkuð, það var útsala á notuðum bílum um daginn og hún keypti sér Toyotu og hún er ekki einu sinni með bílpróf. Nú stendur bíllinn bara framan við húsið okkar óhreyfður.

Þá var ljóshærði karlinn farinn að veltast um af hlátri og segir við félaga sína - ykkur finnst konurnar ykkar ekki gáfulegar, þið ættuð þá að vita hvernig mín er. Hún er úti á Grikklandi með saumaklúbbnum sínum, ha, ha, ha, og hvað haldið þið að hún hafi tekið með sér, ha, ha, ha. Hún tók með sér 50 pk af smokkum og hún sem er ekki einu sinni með typpi.





  • 1
Flettingar í dag: 21
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 52
Gestir í gær: 16
Samtals flettingar: 179430
Samtals gestir: 36383
Tölur uppfærðar: 24.5.2012 12:42:43